Hlaðvörp - Vandað til verka
02. október 2026

Þáttur 2 - Lagnir veikasti hlekkurinn í viðhaldi húsa

Þáttur 2 - Lagnir veikasti hlekkurinn í viðhaldi húsa
Björgvin Stefánsson er viðmælandi Bergþórs Inga. Hann er sérfróður um tjón og viðhald bygginga.

„Vatnstjón eru algengustu tjónin í íslenskum húsum og lagnir gjarnan veikasti hlekkurinn þegar kemur að viðhaldi,“ þetta segir Björgvin Stefánsson, húsasmiður með áralanga reynslu af tjónum og viðgerðum, í nýjasta þætti Vandað til verka um tjón, viðgerðir og endurbætur.

Að sögn Björgvins geta lagnavandamál komið upp jafnvel í húsum sem eru innan við þrjátíu ára gömul. Rör geta tærst bæði að innan og utan og skortur á viðhaldi getur aukið hættuna á tjóni. Lekar eru jafnframt oft faldir og því getur tjón verið orðið talsvert áður en húseigendur verða þess varir.

Gólfhiti er nú í flestum nýjum húsum og segir Björgvin mikilvægt að vanda bæði efnisval og framkvæmd. Ný efni og lausnir þurfi jafnframt að standast íslenskar aðstæður og eiginleika vatnsins.

Í þættinum er sjónum beint að því hvað megi læra af fyrri tjónum og þá sérfræðiþekkingu sem er nauðsynleg til að byggja betur næst.

Fleiri fréttir