Hlaðvörp - Vandað til verka
08. október 2026

Þáttur 3 - Lífsferilsgreiningar

Þáttur 3 - Lífsferilsgreiningar
Viðmælendur þriðja þáttar eru Lilja Sigurrós Davíðsdóttir og Helga María Adolfsdóttir

Lífsferilsgreiningar og kolefnisspor bygginga eru sífellt stærri hluti af ákvarðanatöku í byggingariðnaðinum. En hvernig nýtum við þessar upplýsingar í raun til að velja betur og byggja með langtímahagsmuni í huga?

Í þriðja þætti Vandað til verka ræðir Bergþór Ingi Sigurðsson við Lilju Sigurrós Davíðsdóttur og Helgu Maríu Adolfsdóttur um lífsferilsgreiningar bygginga, kolefnisspor, efnisval og grænar vottanir.

Í þættinum er meðal annars rætt um hvernig hægt er að bera saman ólíkar lausnir, hvaða áhrif efnisval hefur á kolefnisspor bygginga og hvernig lífsferilsgreiningar geta nýst við hönnun og framkvæmdir.

Þær ræða einnig um mikilvægi þess að horfa á bygginguna í heild og yfir allan lífsferil hennar, fremur en aðeins á einstaka þætti við framkvæmdina.

Í þættinum er því sjónum beint að því hvernig gögn og greiningar geta hjálpað fagfólki að taka upplýstari ákvarðanir og vanda betur til verka til lengri tíma.

Fleiri fréttir