Fréttir
09. júní 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Vöxtur prentgreina veltur á fólki frekar en tækni

Vöxtur prentgreina veltur á fólki frekar en tækni

Danna Drion framkvæmdastjóri markaðsmála hjá Mimaki segir framtíð prentiðnaðar ráðist ekki eingöngu af nýjum vélum og hugbúnaði. Ungt og skapandi fólk muni ráða vexti iðnaðarins.

Á FESPA-sýningunni sem fór fram í Barcelona í maí lagði Danna sérstaka áherslu á að prentgreinar þurfi að höfða betur til yngri kynslóða, efla fjölbreytileika og byggja upp sterkari tengsl við nýtt fólk sem geti komið með ferskar hugmyndir inn í iðnaðinn. „Þegar ungt og skapandi fólk kemur inn í greinina færumst við sjálf áfram. Það kemur með ný sjónarhorn, nýjar hugmyndir og hjálpar okkur að sjá ný tækifæri,“ segir hún.

Nýjar lausnir kynntar

Mimaki kynnti á sýningunni fjölda nýrra lausna sem endurspegla þá hröðu þróun sem á sér stað í stafrænni prentun í merkinga- og skiltagerð. Ein af stærstu nýjungunum er 330H, ný hybrid-prentvél. „Viðskiptavinurinn getur framkvæmt allt ferlið með einni vél og þannig nýtt framleiðslugetuna til fulls,“ segir hún.

Önnur nýjung sem vakti athygli á bás Mimaki var Tiger Pigment-prentarinn sem er hannaður fyrir skilta- og grafíkprentun. Þar nýtir fyrirtækið svokallaða Cross Platform-tækni sem hefur áður verið notuð í stærri framleiðslulausnum þess, meðal annars í JFX 600 línunni. Lausnin opnar nýja möguleika í veggspjalda- og umbúðaprentun.

„Við sjáum enn gríðarleg tækifæri til vaxtar. Það eru stöðugt að opnast nýir markaðir og ný notkunarsvið,“ segir hún.

Fræða til að vekja áhuga

Mimaki leggur mikla áherslu á fræðslu og þekkingarmiðlun.

Til að mynda með hlaðvarpsröðinni Print Different Podcast, þar sem sérfræðingar, framleiðendur og leiðtogar í prentiðnaði ræða nýjustu strauma og áskoranir. Markmiðið sé að efla þekkingu, skapa umræðu um framtíð greinarinnar og vekja áhuga nýrra kynslóða á þeim tækifærum sem felast í stafrænum prentlausnum.

Horfðu á viðtalið við Danna Drion

Fleiri fréttir