Fréttir
21. september 2026

Vel heppnað límréttingarnámskeið á Akureyri

Vel heppnað límréttingarnámskeið á Akureyri

Þátttakendur á límréttingarnámskeiði Iðunnar hjá Car-X á Akureyri fengu hagnýta þjálfun með Chris frá Keco Tabs UK. Ný þekking fer nú beint í notkun á verkstæðinu.

Góð stemning var á límréttingarnámskeiði Iðunnar sem haldið var hjá Car-X á Akureyri á dögunum. Leiðbeinandi var Chris frá Keco Tabs UK og mikil ánægja var meðal þátttakenda með námskeiðið og þær aðferðir sem farið var yfir.

Á námskeiðinu fengu þátttakendur að kynnast aðferðum og verkfærum við límréttingar og prófa sig áfram undir leiðsögn Chris.

Iðan_2026_Límréttingar-4

Þekkingin mun svo fara beint í notkun. Car-X ákvað í kjölfar námskeiðsins að fjárfesta í verkfærunum sem notuð voru við kennsluna svo hægt verði að nýta aðferðirnar strax í daglegu starfi verkstæðisins.

Annað límréttingarnámskeið verður haldið í byrjun desember og því gefst fleirum tækifæri til að kynna sér aðferðirnar.

Fleiri fréttir