Góð samtöl á Mannauðsdeginum 2026
Iðan fræðslusetur tók þátt í Mannauðsdeginum 2026 og átti þar góð samtöl við stjórnendur og mannauðsfólk um fræðslu og hæfniþróun.
Það vakti athygli gesta að 15.550 félagsmenn eru aðilar að Iðunni fræðslusetri og margir voru hissa á hversu stór hópurinn er sem hlutfall af íslenskum vinnumarkaði. Stjórnendur voru sérstaklega forvitnir um hlutverk Iðunnar í að móta fræðslu í takt við þarfir atvinnulífsins.
Við kynntum breiddina í þjónustunni, meðal annars raunfærnimat og Erasmus+, og ræddum sérstaklega tækifærin í því að nýta námskeiðframboð Iðunnar sem viðbót við eigið fræðslustarf.
Þrívíddarprentaður vasi vakti athygli á básnum og góð þátttaka var í leiknum. Við þökkum öllum sem litu við hjá okkur og erum strax byrjuð að telja niður í næsta Mannauðsdag.