Hvernig nýtum við örvottanir framtíðarinnar? Taktu þátt
Hvernig geta stutt og markviss námsúrræði stutt við starfsþróun og hvað þarf til þess að örvottanir hafi raunverulegt gildi fyrir atvinnulífið? Þessar spurningar verða í brennidepli á lokaráðstefnu evrópska MCEU verkefnisins sem fram fer í Brussel og í streymi 17. nóvember. Þátttaka er ókeypis.
MCEU verkefnið hefur undanfarin ár skoðað hvernig nýta megi örvottanir, eða micro credentials, til að styðja við þróun færni, viðurkenningu á hæfni og aukinn hreyfanleika starfsfólks, með sérstakri áherslu á ferðaþjónustu og gististarfsemi. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og hefur leitt saman fræðsluaðila, fyrirtæki og sérfræðinga á sviði stafrænna hæfnivottana.
Á lokaráðstefnunni verða helstu niðurstöður kynntar og sjónum beint að næstu skrefum. Fjallað verður um reynslu nemenda og atvinnurekenda, hvað hefur reynst vel og hvað þarf að þróa frekar til að örvottanir nýtist í auknum mæli við starfsþróun, ráðningar og mat á hæfni.
Traust og viðurkenning skipta sköpum
Helen Gray, leiðtogi alþjóðamála hjá Iðunni fræðslusetri, segir mikilvægt að horfa lengra en til námskeiðsins sjálfs þegar rætt er um örvottanir.
„Námskeið eru mikilvæg leið til að viðhalda og efla þekkingu og færni. Raunverulegt gildi örvottana felst hins vegar í því að sú hæfni sem þær staðfesta sé vel skilgreind, njóti trausts og hljóti viðurkenningu bæði innan menntakerfisins og á vinnumarkaði.“
Hún segir niðurstöður verkefnisins hafa varpað ljósi á tækifæri til að þróa skýrari og sameiginlegan ramma um mat, viðurkenningu og nýtingu örvottana í atvinnulífi og menntakerfi.
„Örvottanir geta skapað nýja möguleika til starfsþróunar og símenntunar og jafnframt stuðlað að aukinni viðurkenningu á þekkingu og hæfni einstaklinga. Með auknu samstarfi atvinnulífs og fræðsluaðila um sameiginleg viðmið og verklag má styrkja gæði, gagnsæi og traust á örvottunum og stuðla að víðtækari nýtingu þeirra.“
Vertu með í samtalinu um næstu skref
Lokaráðstefnan er ætluð fræðsluaðilum, atvinnurekendum, fulltrúum atvinnugreina, tækniaðilum og öðrum sem hafa áhuga á framtíð færniþróunar og viðurkenningar á hæfni.
Þar gefst tækifæri til að kynna sér reynsluna úr MCEU, heyra evrópsk sjónarmið og taka þátt í umræðu um hvernig örvottanir geta orðið traust og gagnlegt verkfæri fyrir atvinnulíf og menntakerfi.
Ráðstefnan fer fram 17. nóvember 2026 í Vlerick Business School í Brussel og verður jafnframt hægt að taka þátt á netinu. Þátttaka er ókeypis.
Skráðu þig og taktu þátt í samtalinu um framtíð starfsþróunar, símenntunar og viðurkenningar á hæfni.