Hlaðvörp - Vandað til verka
09. nóvember 2026

Þáttur 7 - Hvað einkennir góð vinnubrögð málara?

Þáttur 7 - Hvað einkennir góð vinnubrögð málara?

Hvað einkennir vönduð vinnubrögð málara?

Í þessum þætti ræðir Bergþór við Erlend Eiríksson um þróun faggreinarinnar og þær kröfur sem eru gerðar til málara í dag. „Tækin og efnin, það hefur orðið hröð þróun í þeim. Í dag eru til mjög góðar slípivélar sem maður sér ekki ryk eftir slípun,“ segir Erlendur.

Öll undirvinna er svo mikilvæg, það geta margir málað en ef þú vilt hafa fagmennsku í þetta þá færðu fagmenn í verkið,“ segir Erlendur og ræðir um fagleg vinnubrögð og hvað skilur vandað verk frá lélegu og bendir á að það séu fjölmargir þættir sem skili góðu verki fagmanns. Undirvinnan en líka efnisþekkingin, handbragðið og frágangurinn. Þekking góðra málara sé mjög fjölbreytt og hæfni þeirra misjöfn eftir verkefnum.

Hvað er erfiðast að læra? Spyr Bergþór.

Erlendur er með það á hreinu en hann er formaður sveinsprófsnefndar í málaraiðn.

„Erfiðast fyrir nema í sveinsprófi er lökkun á hurð, það er erfiðasta verkefnið. Það er verið að lakka í háglans og það er krítískt og það er einna helst það sem er að vefjast fyrir fólki.“

Fleiri fréttir