Leiðtogar greinanna hjá Iðunni fræðslusetri fóru í ferð um Austurland þar sem þeir kynntu starfsemina, heimsóttu fyrirtæki á svæðinu og ræddu við félagsfólk um símenntun og þeirra þarfir.
Farið var í fjölmörg fyrirtæki þar sem félagsfólk starfar, þeirra á meðal; Héraðsprent, Skógarafurðir, Vallanes, Alcoa, Miðás, Lagarfossvirkjun, Sesam handverksbakarí, Launafl, Bílaverkstæði Austurlands og fleiri.
Gáfu heimsóknirnar sterka innsýn í stöðu, áskoranir og þarfir félagsfólks á Austurlandi.
Í gær bauð Iðan svo félagsfólki og áhugafólki um símenntun í iðnaði til opins samtals í Austurbrú á Reyðarfirði.
Heimsóknin á Austurland er liður í áframhaldandi vinnu Iðunnar við að styrkja tengsl við atvinnulífið um land allt, kynna námsframboð sitt og stuðla að aukinni þátttöku í símenntun með því að mæta þörfum hvers landshluta.