Fréttir
06. maí 2026

Iðan styrkir tengsl við fyrirtæki og fólk í iðnaði á Vesturlandi

Iðan styrkir tengsl við fyrirtæki og fólk í iðnaði á Vesturlandi

Leiðtogar Iðunnar heimsóttu Vesturland þar sem þeir kynntu starfsemina og ræddu símenntun og þarfir atvinnulífsins á svæðinu.

Leiðtogar Iðunnar héldu í upphafi vikunnar í ferð um Vesturland þar sem þeir kynntu starfsemi fræðslusetursins og áttu samtöl við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu. Ferðin lá meðal annars um Akranes, Borgarnes, Stykkishólm og Grundarfjörð.

Atvinnulíf á Vesturlandi einkennist að stórum hluta af smærri rekstri og fjölbreyttum störfum og gáfu heimsóknirnar leiðtogunum góða innsýn í stöðu og þarfir svæðisins. Í samtölum kom skýrt fram að áhugi á símenntun er mikill og að fólk á svæðinu er meðvitað um mikilvægi þess að viðhalda og efla þekkingu sína í síbreytilegu starfsumhverfi.

Leiðtogarnir kynntu nám og tækifæri sem standa til boða hjá Iðunni og ræddu um hvernig best væri að mæta þörfum atvinnulífsins með markvissri fræðslu og stuðningi.

Ferðin var liður í áframhaldandi vinnu Iðunnar við að styrkja tengsl við atvinnulíf um land allt og stuðla að aukinni þátttöku í símenntun.

Fleiri fréttir