Fréttir
10. nóvember 2026

Mikil ánægja með Stóreldhúsið 2026

Mikil ánægja með Stóreldhúsið 2026

Um 4.000 manns sóttu Stóreldhúsið 2026 og var mikil aðsókn að bás Iðunnar alla sýninguna. Fjöldi gesta kom við og kynnti sér þá fjölbreyttu möguleika sem standa fólki í matvæla- og veitingagreinum til boða hjá Iðunni fræðslusetri.

Mikill áhugi var á raunfærnimati og þeim leiðum sem það getur opnað fyrir fólk sem hefur aflað sér þekkingar og reynslu í atvinnulífinu. Gestir kynntu sér einnig fjölbreytt námskeiðaframboð Iðunnar, símenntun og aðra þjónustu fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.

3D-prentun vakti athygli

Eins og oft áður vakti leikur Iðunnar mikla lukku meðal gesta. Að þessu sinni var 3D-prentari að störfum á básnum þar sem hnífastandur var prentaður á meðan á sýningunni stóð. Vinningurinn í leiknum var námskeið í 3D-prentun ásamt 3D-prentara.

Á básnum mátti einnig sjá 3D-prentuð mót sem kokkalandsliðið hefur notað við matargerð. Mótin sýndu á skýran hátt hvernig hægt er að nýta 3D-prentun á skapandi og hagnýtan hátt innan matvæla- og veitingagreina.

Steinn Óskar, leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni fræðslusetri ræddi við gesti. Á myndinni er einnig Erna Árnadóttir námsráðgjafi sem fræddi um raunfærnimat og ráðgjöf.

Mikilvægt að heyra hvað er að gerast í greininni

Stóreldhúsið reyndist frábær vettvangur til að hitta fagfólk úr greininni, heyra hvað er efst á baugi á vinnustöðum og ræða hvernig Iðan getur stutt við áframhaldandi fræðslu og starfsþróun.

Fleiri fréttir