Ný efni, ný tækni og aukin samþætting ólíkra greina voru meðal þess sem vakti mesta athygli á FESPA Global Print Expo 2026 í Barcelona.
Á Fespa ráðstefnunni komu saman sérfræðingar úr prent-, merkinga- og bílageiranum til að kynna nýjungar á sviði stafrænnar prentunar, filmuásetninga, bílamerkinga og yfirborðsvarna. Ljóst var að mörkin milli hefðbundinna iðngreina verða sífellt óskýrari þar sem sömu tæknilausnir og vinnuaðferðir nýtast bæði í prentiðnaði og bílgreinum.
Eftirspurn eftir víðari þekkingu en áður
Meðal hápunkta sýningarinnar voru nýjar kynslóðir bílafilma, lakkvarnarfilma (PPF), sjálfbærari prentlausnir og aukin sjálfvirknivæðing í framleiðslu. Eftirspurn eftir sérhæfðu starfsfólki sem býr yfir þekkingu á bæði hönnun, undirbúningi undir prentun, framleiðslu og uppsetningu hefur aukist verulega og endurspeglast það í þróun náms og símenntunar víða um Evrópu.
Leiðtogar prentgreina og bílgreina, þau Kristjana Guðbrandsdóttir og Sigurður Svavar Indriðason kynntu sér áherslurnar í Barcelona og í kjölfarinu munu þau vinna saman að fræðsluverkefnum þvert á greinarnar sem eru í takt við þessa þróun.
„Það er áhugavert hvað þróunin er hröð, segir Sigurður Svavar leiðtogi bílgreina sem segir að tækifærin séu fjölmörg í iðnaðinum. Kristjana Björg, leiðtogi prent- og miðlunargreina segir áhrifaríkt að sjá hversu mörg tækifæri bíða ungs fólks í prentgreinum á miklu víðari sviði en nokkurn tímann áður.
Bíllinn sem nýr í 10 ár
Sigurður Svavar hitti Íslandsvininn Vaidas Gecas á Fespu og nýtti tækifæriið og ræddi við hann um lakkvarnarfilmur á bíla.
Vaidas hefur komið til Íslands og kennt tæknina við að verja bíla fyrir veðri og grjótkasti á íslenskum vegum. „Ég hef verið á Íslandi og vegirnir ykkar eru erfiðir,“ segir Vaidas og segir bíleigendur geta varið bíla sína svo vel með þessari aðferð að þeir líti út sem nýir eftir 10 ára akstur.
Nýjungar á dagskrá í haust
Á dagskrá haustannar eru tveir tengdir fyrirlestrar um nýjungar á Fespa. Þann 1. september verður fjallað um þróun í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum og er skráning á fyrirlesturinn hafin. Þann 3. september heldur fræðslan um nýjungar í auglýsingaprenti áfram og fjallað verður um áhugaverð tækifæri í iðnaðinum og þá sérstaklega hvernig persónusniðin framleiðsla og textílprentun er að umbreyta auglýsingaprenti. Skráning er einnig hafin á þann fyrirlestur og má skrá sig hér.