Námskeið fyrir löggildingu mannvirkjahönnuða
Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2025. Námskeiðið verður haldið á netinu á vefumsjónarkerfi Iðunnar fræðsluseturs.
Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 11. nóvember kl. 9.00 og verða þeir opnir til 28. nóvember. Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 28. nóvember kl. 9.00 – 13.00
Námskeiðsgjald er kr. 118.900.
- Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hms.is með rafrænum skilríkjum á mínum síðum/öryggi mannvirkja "Umsókn á löggildingarnámskeið hönnuða".
Með umsókn skulu fylgja:
- Afrit af prófskírteini umsækjanda
- Staðfesting ráðuneytis um réttindi til starfsheitis
- Vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki
Umsóknir skulu berast eigi síðar en mánudaginn 28. október 2025
Fleiri fréttir