Staðnám
Gæðakerfi pípulagningameistara og byggingargátt
Pípulagningameistarar
Þetta námskeið er fyrir pípulagningameistara sem eru með gæðakerfi sem Félag pípulagningameistara lét gera á sínum tíma. Tilgangur þess er að kynna þátttakendum hvernig byggingargátt Mannvirkjastofnunar getur nýst í tengslum við gæðakerfið. Farið verður í gegnum byggingargáttina og virkni hennar og skoðaðir gátlistar þar, sem geta fallið inn í gæðakerfið.