Fjarnám

Sjálfbærni í byggingariðnaði - ókeypis fyrirlestrar i fjarnámi

Þetta námskeið er fyrir alla sem koma að hönnun og framkvæmd verkefna í bygginga- og mannvirkjagerð.  Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um hvernig stuðla megi að aukinni sjálbærni í greininni og þar með að vistvænni byggingaraðferðum.

Um er að ræða fjóra fyrirlestra sem eru:

  1. Sjálfbærni í mannvirkjagerð - almenn yfirferð 
  2. Stig - Ný sjálfbærni viðmið Evrópusambandins (Levels)
  3. Bundið - kolefni (Embodied carbon)
  4. Hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði - áskoranir og möguleikar 

Leiðbeinendur eru Ragnar Ómarsson byggingafræðingur, stjórnarformaður Grænni byggðar og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir orku- og umhverfisverkfræðingur og framkvæmdastjóri Grænni byggðar. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Grænni byggð sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband