Staðnám (fjarnám í boði)
Burðarvirkismæling, endurnýjun réttinda
Bifvélavirkjar - Bifreiðasmiðir
Námskeið til endurnýjunar rétthafa til útgáfu burðarvirkisvottorða samkvæmt faggildingarlista Samgöngustofu; US.355. Réttindi þarf að endurnýja á fimm ára fresti. Fulltrúar Samgöngustofu kynna breytingar sem orðið hafa á reglugerðum síðustu misserin og leiðbeinendur á sviði bílgreinarinnar fara yfir nýjustu tæknibreytingar og vinnubrögð í viðgerðum á burðarvirki bíla. Að námskeiði loknu fá viðkomandi endurnýjaðan rétt til að fylla út burðarvirkisvottorð næstu fimm árin að undangenginni úttekt á vinnustað þeirra.Úttektin kostar 18.000kr á hvern einstakling sem er tekinn út.