Masterclass: After Effects og Cinema 4D
Hönnuðir, prentsmiðir, listamenn, stjórnendur markaðsstarfs, umbrotsmenn, blaðamenn
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
Gerð þrívíddar-hreyfimynda með Cinema 4D. Nemendur læra að hanna einfaldar hreyfimyndir í þrívídd sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum.
Farið verður í undirstöðuatriði hönnunar á þrívíddarhreyfimyndum, nemendur fá leiðsögn í að leysa einföld verkefni og lagður góður grunnur í notkun á Cinema 4D lite forritinu en það er hluti af Adobe After effects hreyfimyndaforritinu. Æskilegt er að nemendur hafi tekið grunnnámskeið í After Effects eða hafi grundvallar þekkingu á því forriti.
Allir nemendur námskeiðsins fá aðgang að upptökum í 30 daga eftir að námskeið hefst og geta því stundað námið á sínum hraða.
Kennari: Steinar Júlíusson er reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður. Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka. Steinar hefur áður kennt við LHÍ og hinn virta Berghs School of Communication.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
02.11.2021 | þri. | 18:00 | 21:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
04.11.2021 | fim. | 18:00 | 21:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |
08.11.2021 | mán. | 18:00 | 21:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |