Staðnám

Suðupróf - yfirseta

Yfirseta í suðuprófi - Góð leið fyrir félagsmenn Iðunnar til að taka suðupróf. 

Suðumaður hefur æfingarstykki með til að sanna kunnáttu og getu sína. Með því móti sýnir suðumaður kennara að hann sé tilbúin í verkefnið og getur farið beint í prófið. Ef suðustykki standast ekki sjónskoðun er ljóst að viðkomandi suðumaður er ekki tilbúin til að taka próf sem sent er á tilraunarstofu.

Yfirseta getur farið fram í fyrirtækjum eða í húsakynnum Iðunnar fræðsluseturs. Með þessu móti hafa allir jafna möguleika óháð staðsetningu. 

Þeir sem óska eftir að taka suðupróf þurfa að skrá sig og hafa samband við kennara sem finnur tíma sem hentar báðum aðilum. 

Kennari:

Hilmar Brjánn & Kristján Kristinsson


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband