Staðnám

Þakpappalögn

Byggingamenn

Þetta námskeið er fyrir byggingamenn sem þurfa að leggja asfaltpappa á þök og aðra fleti utanhúss.  Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um eiginleika og gerðir asfaltpappa og kenna þeim að leggja pappann á réttann hátt. Fjallað er um mismunandi gerðir, eiginleika, efnainnihald og notkun við mismunandi aðstæður. Farið er yfir undirbúning fyrir pappalögn, undirvinnu og frágang yfirborðs.  Fjallað er um lagningu pappa, efni, verkfæri og frágang við horn, kverkar og kanta.  Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og munu þátttakendur reyna sig við pappalögn. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við BYKO.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband