Staðnám

Ljósmyndanámskeið fyrir fagfólk í matvæla og veitingagreinum.

Námskeið ætlað þeim sem hafa áhuga á að bæta færni sína í ljósmyndun á iPhone síma eða einfalda myndavél. Áhersla á mikilvægi þess að taka vandaðar myndir fyrir markaðsefni eða bara Instagram síðuna.

Lærðu að taka flottar myndir á iPhone símann eða einfalda myndavél. Námskeið ætlað þeim sem hafa áhuga á að bæta færni sína í ljósmyndun á iPhone síma eða einfalda myndavél. Áhersla á mikilvægi þess að taka vandaðar myndir fyrir markaðsefni eða bara Instagram síðuna. Námskeiðið er kennt tvo seinniparta, 5 klst. hvorn dag.

Dagur 1

Kynning á almennri ljósmyndun og hversu mikilvægt er að taka hágæða myndir, hvort heldur fyrir lambahrygg í kjötborði, nýbakað súrdeigsbrauð, rauðvínsflösku eða vel uppsettan forrétt. Á námskeiðinu verður rætt um notkun myndefnis til að laða að viðskiptavini og kynntir möguleikar og takmarkanir iPhone síma og einfaldari myndavéla. Fjallað verður um:-grundvallarreglur myndbyggingar-ljósatækni, mikilvægi náttúrulegs ljóss og hvernig eigi að nýta það-gervilýsingu fyrir aðstæður innandyra og í lítilli birtu-stillingar myndavéla og eiginleika-fókus, lýsingu og hvítjöfnun. Nemendur fá verklegar æfingar til að æfa sig í að vinna með þessa þætti, sýna og segja frá ásamt því að vinna með mismunandi ljósauppsetningar. Í verklegri lotu kanna nemendur einnig og breyta stillingum á tækjum sínum. Heimavinna felst í að æfa sig í að taka matarmyndir út frá áherslum námskeiðsins og senda bestu myndirnar inn til skoðunar fyrir næstu lotu.

Dagur 2

Upprifjun og byggt á grunnþekkingu frá fyrri degi þar sem kynntar eru þróaðri leiðir í matarljósmyndun með iPhone eða einfaldri myndavél.Fjallað verður um:-stíl og mikilvægi hans-val á leikmunum og bakgrunni-grunn atriði stafrænnar klippingar-grunn myndvinnslutækni, litaleiðréttingu og endurbætur-samfélagsmiðla og árangursríka markaðssetningu með myndefni. Þá verður kynning á myndvinnsluforritum fyrir farsíma og rætt um uppbyggingu vörumerkja með samræmdu myndefni. Í verklegri lotu stíla nemendur og mynda rétt. Farið verður yfir heimaverkefnin og þátttakendum skipt í hópa til að veita hvort öðru endurgjöf og tillögur til úrbóta. Leiðbeinandi á þessu námskeiði er Karl Petterson. Karl er einn allra færast matar ljósmyndari hér á landi og hefur myndað fyrir fjölmargar matreiðslubækur sem komið hafa út undanfarin ár. Karl sýnir margar af sýnum bestu myndum á heimsíðu sinni karlpetersson.com


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
15.05.2024mið.13:0018:00Hús Fagfélaganna, Stórhöfða 31
22.05.2024mið.13:0018:00Hús Fagfélaganna, Stórhöfða 31
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband