Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum til byggingarfulltrúa
Þetta námskeið er fyrir alla sem þurfa að skila gögnum til byggingarfulltrúa vegna öryggis- og lokaúttektar á byggingum. Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýra innsýn í öryggis- og lokaúttektir samkvæmt gildandi byggingarreglugerð og auðvelda þeim þannig skil á gögnum.
Farið verður yfir helstu reglugerðarkröfur, framkvæmd skoðana, ábyrgð aðila, skráningu gagna og hvernig tryggja á að mannvirki uppfylli allar kröfur áður en lokaúttekt fer fram. Fjallað verður ferli öryggis- og lokaúttekta og hlutverk og ábyrgð byggingarstjóra, iðnmeistara, verktaka, byggingarfulltrúa og slökkviliðs. Tekin verða raunveruleg dæmi og fjallað um þau til að tryggja hagnýta nálgun sem nýtist í daglegu starfi.
HVAR OG HVENÆR
DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
---|---|---|---|---|
29.04.2025 | þri. | 10:00 | 12:00 | IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 |