Staðnám

Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum til byggingarfulltrúa

Þetta námskeið er fyrir alla sem þurfa að skila gögnum til byggingarfulltrúa vegna öryggis- og lokaúttektar á byggingum.  Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum skýra innsýn í öryggis- og lokaúttektir samkvæmt gildandi byggingarreglugerð og auðvelda þeim þannig skil á gögnum.

Farið verður yfir helstu reglugerðarkröfur, framkvæmd skoðana, ábyrgð aðila, skráningu gagna og hvernig tryggja á að mannvirki uppfylli allar kröfur áður en lokaúttekt fer fram.  Fjallað verður ferli öryggis- og lokaúttekta og hlutverk og ábyrgð byggingarstjóra, iðnmeistara, verktaka, byggingarfulltrúa og slökkviliðs.  Tekin verða raunveruleg dæmi og fjallað um þau til að tryggja hagnýta nálgun sem nýtist í daglegu starfi.


HVAR OG HVENÆR

DAGSETNINGKENNTFRÁTILSTAÐSETNING
29.04.2025þri.10:0012:00IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20
Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband