Fréttir
29. júní 2026

Rafknúnir vöruflutningar í Noregi

Rafknúnir vöruflutningar í Noregi

Orkuskipti í samgöngum eru á fullri ferð í Noregi en flutningabílar og stærri vinnuvélar eru í auknum mæli rafknúin þar í landi.

Norsk stjórnvöld hafa sett sér það markmið að öll ný þungaflutningatæki verði rafknúin eða knúin lífgasi fyrir árið 2030.

Fulltrúar bílgreina hjá Iðunni fræðslusetri fóru nýverið í fræðsluferð til Noregs til að kynna sér áhrif þessarar hröðu rafbílavæðingar.

Bílaframleiðandinn Volvo Trucks hefur verið leiðandi á þessu sviði og hóf sölu rafknúinna vörubíla strax árið 2019. Fyrirtækið hefur nú afhent eða tekið við pöntunum á yfir 800 rafknúnum vörubílum í Noregi frá árinu 2023 og hefur 58% markaðshlutdeild í flokki rafknúinna vörubíla yfir 16 tonnum.

Reynslan af rafknúnum vörubílum hefur almennt verið mjög jákvæð og nefna rekstraraðilar meðal annars minni hávaða, betri orkunýtingu og aukin akstursþægindi.

Krafa um notkun rafknúinna vinnuvéla í miðborg Osló

Í sumum tilvikum er einnig gerð krafa um að verktakar noti alfarið rafknúin ökutæki og vinnuvélar við framkvæmdir í miðborg Osló, sem ýtir enn frekar á rafvæðingu innan geirans. Fulltrúar Norska bílgreinasambandsins (NBF) benda þó á að þrátt fyrir hraðar tækniframfarir þurfi áfram að byggja upp öfluga hleðsluinnviði fyrir stærri ökutæki, þar sem fyrirsjáanleiki og skýr stefna stjórnvalda skiptir sköpum.

Fleiri fréttir