Iðan fræðslusetur sýndi rafvæddan Land Rover Defender á Bíladögum á Akureyri.
Bíllinn vakti mikla athygli gesta enda sameinar hann klassíska jeppamenningu og nýjustu tækni á sviði rafvæðingar ökutækja. Bíllinn var rafvæddur á sérstöku námskeiði sem Iðan stóð fyrir í samstarfi við breska fyrirtækið Electric Classic Cars fyrr á árinu.
Verkefnið fólst í að breyta 2007 árgerð af Land Rover Defender í rafbíl með háspennukerfi úr Nissan Leaf. Markmiðið náðist á aðeins þremur dögum og tókst þátttakendum að gera bílinn aksturshæfan áður en námskeiðinu lauk.
„Miklir möguleikar felast í rafvæðingu eldri bíla, bæði til að lengja líftíma þeirra og draga úr umhverfisáhrifum,“ segir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina hjá Iðunni sem segir verkefnið hafa vakið mikinn áhuga meðal fagfólks, jeppaeigenda og fornbílaáhugafólks.
Sýning bílsins á Bíladögum gaf gestum tækifæri til að skoða afrakstur verkefnisins og sjá hvernig hægt er að gefa sígildum jeppa nýtt líf með rafdrifi. Með verkefninu vill Iðan stuðla að aukinni þekkingu á nýrri tækni og undirstrika þau tækifæri sem felast í sjálfbærri þróun innan bílgreina.