Fréttir
14. apríl 2026

Rafvæðing eldri bíla - Streymi

Rafvæðing eldri bíla - Streymi

Fylgstu með Land Rover rafvæðast

Mikil eftirspurn hefur verið eftir námskeiðinu Breyting á Land Rover í rafbíl – verklegt, sem haldið er í samstarfi við Electric Classic Cars og ÍSAK 4x4 Rental. Nú er námskeiðið fullbókað.

Þau sem ekki komust að eiga þó kost á að fylgjast með því sem fram fer, en boðið er upp á beint streymi úr salarkynnum Iðunnar. Þar má sjá helstu verkþætti námskeiðsins og fá innsýn í ferlið þegar Land Rover Defender er breytt í rafbíl.

Á námskeiðinu vinna þátttakendur að því að setja háspennukerfi úr Nissan Leaf 2023 í Land Rover Defender 110 árgerð 2007, með það að markmiði að bíllinn verði aksturshæfur að námskeiði loknu. Farið er yfir uppsetningu háspennukerfa, tengingar við aflrás, nauðsynlegan búnað og öryggisatriði.

Athugið að streymið er án hljóðs.

Hægt er að nálgast link inn á YouTube síðu Iðunnar hér að neðan:

https://www.youtube.com/@idanfraedslusetur/streams

Fleiri fréttir