Fréttir
18. ágúst 2026

Takk fyrir komuna á afmælishátíð Iðunnar

Takk fyrir komuna á afmælishátíð Iðunnar

Takk fyrir frábæran afmælisdag!Iðan fagnaði 20 ára afmæli sínu með pompi og prakt í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 16. ágúst.

Við viljum færa öllum sem komu og fögnuðu þessum tímamótum með okkur okkar bestu þakkir fyrir frábæran dag.

Það var einstaklega ánægjulegt að sjá félagsfólk, fjölskyldur og vini koma saman og njóta dagsins í góðri stemningu. Garðurinn iðaði af lífi og gestir á öllum aldri gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.

Leikhópurinn Lotta hóf dagskrána og skemmti yngstu gestunum áður en tónlistin tók við á stóra sviðinu. Þar stigu Jón Jónsson, KK, Ragga Gísla og Væb á svið og héldu uppi fjörinu.

Boðið var upp á pylsur og ís ásamt andlitsmálningu og fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Iðngreinastöðvarnar voru einnig á sínum stað þar sem gestir fengu tækifæri til að kynnast fjölbreyttum iðngreinum Iðunnar á lifandi og skemmtilegan hátt.

20 ára afmælið er stór áfangi í sögu Iðunnar. Þess vegna var sérstaklega ánægjulegt að fá að fagna honum með félagsfólkinu okkar og fjölskyldum þeirra, fólkinu sem Iðan snýst um.

Takk kærlega fyrir komuna og fyrir að gera 20 ára afmælishátíð Iðunnar að eftirminnilegum degi.

Við hlökkum til næstu 20 ára með ykkur!

Fleiri fréttir