Vandað til verka fagnað með útgáfuboði
Það var góð stemning á Stórhöfðanum á föstudag þegar nýju hlaðvarpi Iðunnar, Vandað til verka, var fagnað með útgáfuboði.
Vandað til verka er nýtt hlaðvarp um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingunni og reynslunni í greininni. Bergþór Ingi Sigurðsson, húsasmiður og byggingatæknifræðingur, stýrir þáttunum og fær til sín fjölbreyttan hóp viðmælenda úr bygginga- og mannvirkjageiranum.
Í þáttunum verður rætt um fagið frá ýmsum hliðum; verkefnin, handverkið, þróunina í greininni og reynsluna sem verður til á vinnustöðum og í gegnum árin. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir samtal um það sem skiptir máli í byggingariðnaðinum og gefa röddum úr greininni gott rými.
Útgáfuboðið markaði upphafið að þessari nýju þáttaröð og nutu gestir léttra veitinga, hittust og ræddu saman um fagið og verkefnið.
Fyrsti þáttur Vandað til verka kemur út í dag 28. september. Þar með hefst þáttaröð þar sem þekking, reynsla og fagmennska fólks í bygginga- og mannvirkjageiranum verður í forgrunni.
Smelltu hér til að hlusta.