Hlaðvörp - Vandað til verka
25. september 2026

Þáttur 1 – Sylgja Dögg: Raki og mygla

Þáttur 1 – Sylgja Dögg: Raki og mygla
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir er fyrsti viðmælandi Vandað til verka

Mygla er ekki alltaf sýnileg og orsakirnar geta verið fleiri en fólk heldur. Hvað veldur myglu í byggingum, hvernig þekkjum við merkin og hvað eigum við að gera þegar grunur vaknar? Um þetta er fjallað í fyrsta þætti í nýju fræðsluhlaðvarpi Iðunnar.

Vandað til verka er tíu þátta hlaðvarpssería og fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingunni og reynslunni í greininni. Bergþór Ingi Sigurðsson stýrir þáttunum og ræðir þar við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu. 

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir líffræðingur og stofnandi Verkvistar er fyrsti viðmælandi Bergþórs. Umræðuefnið er raki og mygla, greining, fyrstu viðbrögð og hvernig við getum byggt heilnæmari hús.

Fleiri fréttir