Fræðslustyrkir til fyrirtækja

Áttin auðveldar fyrirtækjum að sækja endurgreiðslur úr starfsmenntasjóðum

Lísbet Einarsdóttir framkvæmdastjóri Starfsafls kom í hlaðvarp IÐUNNAR, Augnablik í iðnaði, til að ræða Áttina. Þar fórum við yfir umsóknarferlið og þá leið sem starfsmenntasjóðirnir fara til að styðja sem best við fræðslustarf í fyrirtækjum.

Áttin er vefgátt fyrir fræðslustyrki og samstarfsverkefni starfsmenntunarsjóða IÐUNNAR, Starfsafls, Landsmenntar, Rafmenntar, Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks,  Sambands stjórnendafélaga og Starfsmenntasjóðs verslunarinnar. Með einni umsókn er hægt að senda samtímis á alla sjóðina og fá þannig endurgreitt fyrir félagsmenn sem þeim tilheyra. Fyrirtæki hafa þannig góða yfirsýn yfir stöðu umsókna.

Áttin býður einnig upp á fræðslustjóra að láni sem fjöldi fyrirtækja hefur nýtt sér segir Lísbet. Hún bætir því við að þá komi ráðgjafi inn í fyrirtæki á vegum sjóðanna sem greini fræðsluþörf með stjórnendum og starfsfólki. Útkoman er skýr fræðsluáætlun sem er sameign allra í fyrirtækinu.

Kynntu þér starfsemi Áttarinnar nánar hér

Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband