Auglýsing um sveinspróf

Stefnir þú á sveinspróf?

    Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka næst:

    • Í matvælagreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
    • Í byggingagreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
    • Í prentgreinum í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
    • Í bílamálun og bifreiðasmíði í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1.apríl.
    • Í bifvélavirkjun í ágúst/september. Umsóknarfrestur er til 15. júní.
    • Í hönnunar- og handverksgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
    • Í snyrtifræði í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
    • Í vélvirkjun í sept. Umsóknarfrestur er til 15.júní.
    • Í hársnyrtiiðn í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
    • Í ljósmyndun í sept/okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
    • Í málmiðngreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15.apríl.

    Dagsetningar prófa verða birtar á vef okkar um leið og þær liggja fyrir.

    Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit eða staðfestingu frá skóla úr rafrænni ferilbók og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2022

    Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

    Umsóknareyðublöð  má nálgast hér og á skrifstofu okkar í Vatnagörðum 20.

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband