Ellefu keppendur frá Íslandi taka þátt í Euroskills í Póllandi

Dagana 5. - 9. september fer Euroskills, Evrópumót iðn-, verk-, og tæknigreina fram í Gdańsk í Póllandi.

Íslenski landsliðshópurinn sem tekur þátt í Euroskills 2023 í Gdańsk í Póllandi ásamt Georgi Páli Skúlasyni, formanni Verkiðnar / Skills Iceland og Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.
Íslenski landsliðshópurinn sem tekur þátt í Euroskills 2023 í Gdańsk í Póllandi ásamt Georgi Páli Skúlasyni, formanni Verkiðnar / Skills Iceland og Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra.

    Euroskills fer að jafnaði fram annað hvert ár og hefur Ísland átt fulltrúa í keppninni frá árinu 2007, en aldrei jafn marga og í ár eða 11 talsins. Á síðasta Evrópumóti, sem fram fór í Búdapest í Ungverjalandi, vann Ísland til silfurverðlauna í rafeindavirkjun.

    Euroskills verður sett með pomp og prakt á opnunarhátíð í kvöld, þriðjudaginn 5. september í Gdańsk, en keppnin fer síðan fram dagana 6. - 8. september. Lokaathöfn og verðlaunaafhending fer síðan fram laugardaginn 9. september.

    Öflugur landsliðshópur

    Ellefu ungir og efnilegir fulltrúar taka þátt í eftirfarandi greinum:

    • Bakaraiðn - Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólinn
    • Framreiðsla - Finnur Gauti Vilhelmsson, Hótel- og matvælaskólinn
    • Grafísk miðlun - Olivier Piotr Lis, Tækniskólinn
    • Hársnyrtiiðn - Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólinn á Akureyri
    • Iðnaðarstýringar - Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólinn
    • Kjötiðn - Bríet Berndsen Ingvadóttir, Hótel- og matvælaskólinn
    • Matreiðsla - Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólinn
    • Pípulagnir - Kristófer Daði Kárason, Tækniskólinn
    • Rafeindavirkjun - Hlynur Karlsson, Tækniskólinn
    • Rafvirkjun - Przemyslaw Patryk Slota, Verkmenntaskóli Austurlands
    • Trésmíði – Van Huy Nguyen, Tækniskólinn

    Fulltrúar Íslands eiga það sameiginlegt að hafa borið sigur úr býtum á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem fór fram í Laugardalshöll í mars sl. Um 600 keppendur frá 32 þjóðum munu etja kappi á Euroskills ásamt þjálfurum sínum og fylgdarliði. Keppt verður í 42 greinum og má búast við um 100 þúsund áhorfendum í Gdańsk dagana 5. – 9. September. Íslensku keppendunum fylgja þjálfarar og fylgdarlið og telur íslenski hópurinn um 40 manns.

    Mikilvægt fyrir framþróun í iðn- og verknámi

    „Að taka þátt í Euroskills er mjög mikilvægt fyrir framþróun í iðnaði og ekki síður fyrir iðn -og verknám á Íslandi,“ segir Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar eða Skills Iceland eins og samtökin heita á alþjóðavettvangi.

    Euroskills er haldin af WorldSkills Europe sem er hluti af alþjóðlegu WorldSkills hreyfingunni og hefur það að markmiði að kynna iðn- og verknám og möguleika þess. „Samtökin vinna markvisst með stjórnvöldum og iðnaði til að undirbúa samfélagið undir störf framtíðarinnar. Hvert þátttökuland keppist um að þróa færni sína í hverri grein og þátttaka í Euroskills stuðlar einnig að öflugri starfsþróun þeirra iðn- og verkgreinakennara sem taka þátt í þjálfun okkar efnilegu fulltrúa sem keppa fyrir Íslands hönd,“ segir Georg Páll.

    Snúa aftur heim með mikla reynslu

    Sigurður Borgar Ólafsson er liðsstjóri íslenska landsliðshópsins, en hann er útskrifaður framreiðslumaður og tók þátt í síðasta Euroskills sem fram fór í Búdapest í Ungverjalandi árið 2018. „Það er mikið stuð í hópnum og mikill spenningur að hefja leika á Euroskills hér í Gdańsk. Þetta er mjög öflugur hópur, enda best í sínu fagi á Íslandi eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar í sinni iðn- og verkgrein. Það er ekki mikilvægast að landa gullverðlaunum á Euroskills, heldur mikið frekar að vera ánægður og líða vel með að taka þátt. Koma síðan heim til Íslands með mikla reynslu og gott veganesti sem hægt er að miðla áfram,“ segir Sigurður Borgar.

    Fylgstu með íslensku keppendunum á samfélagsmiðlum

    Íslensku keppendunum verður fylgt eftir á Euroskills í máli og myndum, en hægt er að fylgjast með á vefsíðunni www.namogstorf.is, Facebook og Instagram.

     

    Hafa samband

    Hafðu samband

    Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband