Staðnám
Burðarvirkismæling
Bifvélavirkjar - Bifreiðasmiðir
Farið yfir undirstöðumælingar á burðarvirki ökutækja, rúðuskipti, samskeytingu og suðuaðferðir á nýjum efnum. Markmiðið er að öðlast leikni í að meta ástand tjónabíls út frá niðurstöðum mælinga og gera mat í CABAS, auk hæfni í að meta ástand bíla sem hafa orðið fyrir tjóni. Unnið er í samræmi við leiðbeiningar og fyrirmæli framleiðanda. Þátttakendur afla sér haldgóðrar þekkingar á að fylla út burðarvirkisvottorð sem staðfestir ástand burðarvirkis.
Að námskeiði loknu er viðkomandi þátttakandi skráður á faggildingarlista rétthafa til útgáfu burðarvirkisvottorða hjá Samgöngustofu að undangenginni úttekt á vinnustað hans.