Fagfólk í prent- og auglýsingaiðnaði fjölmennti á Snertipunkta: Dag prents- og hönnunar sem fór fram með glæsibrag miðvikudaginn 13. maí í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 í Reykjavík.
Kastljósinu var beint að styrkleikum prents í stafrænum heimi og því hvers vegna prent heldur áfram að skipta máli sem áhrifaríkur og áþreifanlegur snertipunktur við fólk.
Dagskráin hófst síðdegis með setningu frá Vilborgu Helgu Harðardóttur, framkvæmdastjóra Iðunnar, og Kristjönu Björgu Guðbrandsdóttur, vefstjóra og leiðtoga prent- og miðlunargreina. Í kjölfarið tóku við fjölbreyttir fyrirlestrar og vinnusmiðjur þar sem fjallað var um sjálfbærni, stafræna prentun, breyttar reglugerðir, nýsköpun, varðveislu prentmenningar og þróun í hönnun og vörumerkjastöðlum.
Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Gundula Ullah frá Funke Media í Þýskalandi, Moritz Feil frá Fogra Institute, Sigurjón Ólafsson hjá Funksjón, Reynir Traustason hjá Góðum punkti, Sigurður Oddsson hönnunarstjóri og Hólmfríður Benediktsdóttir leturhönnuður frá Aton, Málfríður Finnbogadóttir Prentsögusetri og fleiri.
Að lokinni fræðsludagskrá steig Ari Eldjárn á svið með uppistand sem sló í gegn meðal gesta. Kvöldinu lauk síðan með léttum veitingum, tónlist og líflegu spjalli.
Takk bakhjarlar hátíðarinnar fyrir góðan stuðning: Landsprent, Prentmet Oddi, Gunnar Eggertsson hf, Aton og GRAFÍA.