Þú þekkir starfsfólkið þitt og við þekkjum fræðsluna
Námskeið, skráningar og fræðsla starfsfólks fyrirtækisins á einum stað á fyrirtækjasíðum Iðunnar.
Á fyrirtækjasíðum Iðunnar getur þú fundið námskeið og fræðslu sem byggir upp hæfni þíns starfsfólks og skráð það til þátttöku með einföldum hætti.
Finndu námskeið og skráðu starfsfólk
Finndu námskeið og fræðslu sem hentar þínu fyrirtæki og starfsfólki. Ef að þú lendir í vandræðum með skráningu þá getur þú haft samband við tengilið námskeiðs og fengið aðstoð.
Námsferill starfsfólks
Fáðu yfirsýn yfir námskeið og fræðslu sem starfsfólk hefur lokið í gegnum fyrirtækið. Fylgstu með tölfræði, framgangi og kostnaði við fræðsluna.
Skírteini og réttindi starfsfólks
Nálgastu skírteini og staðfestingar og fylgstu með gildistíma réttinda þar sem við á.
Sérsniðin fyrirtækjanámskeið fyrir vinnustaðinn
Hafðu samband við leiðtoga hjá Iðunni og fáðu sérsniðið fyrirtækjanámskeið fyrir þitt starfsfólk. Segðu okkur hvað fyrirtækið þarf og við hjálpum þér að finna eða móta réttu fræðsluna.
Þegar námskeiðið er tilbúið birtist það undir flipanum sérsniðin námskeið hér inni á fyrirtækjasiðum og þar getur þú skráð starfsfólk á það með einföldum hætti.
Fræðslustyrkir og niðurgreiðslur
Kannaðu möguleika á styrkjum og niðurgreiðslum vegna fræðslu og starfsþróunar.
Ráðgjöf um fræðslu og starfsþróun
Fáðu ráðgjöf um hæfniþarfir, fræðslu og starfsþróun fyrir þitt fyrirtæki.
Reikningar og greiðslur
Haltu utan um verð, reikninga og greiðslur vegna námskeiða fyrirtækisins.
Fleiri stjórnendur – einn aðgangur fyrirtækis
Veittu ábyrgðaraðilum heimild til að sjá og sjá um fræðslu starfsfólks.
Hjálpaðu okkur að þróa þjónustuna
Er eitthvað sem þér dettur í hug að gæti bætt okkar þjónustu og námskeiðsframboð? Láttu okkur vita.