Hópefli sem bragð er að
Vantar hugmynd að skemmtilegri samveru fyrir starfsmannahópinn sem skilur eitthvað eftir sig?
Fram undan eru fjölbreytt námskeið hjá Iðunni þar sem hópar og fyrirtæki geta sameinað fræðslu, sköpun og góðar stundir. Sameiginleg upplifun utan vinnustaðarins er góð leið til að efla tengsl.
Allir vilja geta blandað hinn fullkomna G&T. Við bjóðum upp á námskeið þar sem þátttakendur læra listina.
Ostanámskeiðin með Bjarka Long hafa reynst stórkostlegt hópefli en námskeiðinu mætti lýsa sem bragðferðalagi með hátt í tuttugu ostum, meðlæti og parað er við vín og bjór.
Enn fleiri hugmyndir er að finna í námskeiðaúrvali matvælagreina, svo sem hnífabrýnslu þar sem japönsk brýningaraðferð lærð í verki og brýningarsteinn fylgir hverjum þátttakanda heim og þá er hægt að læra af snillingnum Kunang á veitingastaðnum Ramen Momo sem kennir galdurinn á bak við hina fullkomnu ramen-skál.
Jólahópefli
Fyrir hópa sem vilja komast í hátíðarskap er einnig boðið upp á Hátíðarpaté & kæfugerð, Listina að gera jólakokteil, þar sem veglegt kokteilgerðarsett fylgir með heim, og væntanlegt er námskeið þar sem þátttakendur búa til sitt eigið Þitt eigið jólakonfekt með Ólöfu Ólafsdóttur, þar sem þátttakendur læra að vinna með súkkulaði, fyllingar og hjúpun.
Gerið eitthvað skemmtilegt saman og takið nýja þekkingu með heim. Kynnið ykkur námskeiðin hjá Iðunni en einnig er hægt að hafa beint samband við til að kanna hvað hentar ykkar hópi.