Loftstýringar

Tilgangur námsþáttarins er að námsmenn kynnist uppbyggingu og virkni loftstýrikerfa og helstu einingum þeirra. Þeir fá þjálfun í lestri táknmynda samkvæmt ISO staðli og að þekkja samhengi flatar, þrýstings og krafts. Fjallað er um hvernig einingar loftstýrikerfa eru valdar og settar upp samkvæmt teikningu. Námsmenn þjálfast í að nota einfaldar teikningar af loftkerfum til stuðnings við bilanaleit, lesa úr teikningum og teikna lítil loftstýrikerfi. Hæfniviðmið námsþáttar Námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: - Grundvallaratriðum í loftstýringum. - Virkni helstu íhluta loftkerfa. - Virkni helsta búnaðar í loftkerfum og virkni hans. - Samhengi flatar, þrýstings og krafts. Námsmaður skal hafa öðlast leikni í að: - Lesa táknmyndir samkvæmt ISO staðli. - Nota reglur og staðla í almennri stýritækni. - Teikna, setja upp og tengja lítil loftstýrikerfi. - Þjónusta loftkerfi hvað varðar meðhöndlum lofts (raka, síun og hitastig). Námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: - Rekja og gera sér grein fyrir virkni einfaldra loftstýrikerfa með hjálp tengimynda. - Útskýra byggingu og virkni einstakra hluta í loftkerfum. Þá eru loft og vökvakeri borin saman og farið yfir oliur og feiti í loftkerfum.


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband