Ostagerð -Heimavinnsla mjólkurafurðar-

Matreiðslumenn og framreiðslumenn

Fjallað verður stuttlega um þróun mjólkur, fjölbreytileika mjólkur og mjólkurafurða, helstu hugtaka í mjólkurfræðum, hlutverk efna mjólkurinnar og þann mikla tegundafjölda sem framleiddur er úr mjólk. Grunnatriði ostagerðar eru rædd og kenndar einfaldar aðverðir við ferskar og súrar mjólkurafurðir. Þátttakendur fá einnig innsýn í smásæjan heim gerla og hvata, nýtingu þeirra í framleiðslu, hvað bera að forðast og hvað skal kalla fram. Einnig verður rætt um tæki, tól og aðstöðu sem þarf til heimavinnslu mjólkurafurða. Þátttakendur fá síðan tækifæri til að framleiða nokkrar tegundir mjólkurvara sem næst að fullgera á stuttum tíma s.s. jógúrt og mozzarella, og fá að lokum með sér heimaverkefni. Allir þátttakendur fá bókina Ostagerð, heimavinnsla mjólkurafurða eftir Þórarinn Egil Sveinsson að gjöf á námskeiðinu. Kennari: Þórarinn Egill Sveinsson mjólkurverkfræðingur


Hafa samband

Hafðu samband

Netspjall Fljótleg leið til að hafa samband