Fréttir
10. ágúst 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Afslöppuð vinnumenning í Danmörku

Afslöppuð vinnumenning í Danmörku
Svona tækifæri gefast ekki á hverjum degi, svo ef þið hafið möguleikann, nýtið hann!“ Segir Ísak Árni um starfsþjálfun í Danmörku á vegum Erasmus+

Bakarinn Ísak Árni Guðmundsson fór í starfsþjálfun í Jumbó bakarí í Árósum og segir upplifunina hafa verið nærandi.

Starfsþjálfun erlendis með Erasmus+ gefur iðnnemum tækifæri til að kynnast nýjum vinnubrögðum, öðru starfsumhverfi og nýrri menningu. Ísak Árni dvaldi nýverið í þrjá mánuði í Árósum á vegum Erasmus+ og lærði ýmislegt nýtt í bakaraiðn í hinu vinalega og vinsæla Jumbó bakaríi þar í borg.

„Mig hafði alltaf langað til að prófa að búa í öðru landi og þetta var frábært tækifæri til þess. Ég gat heldur ekki sleppt tækifærinu til að vinna og læra í bakaríi í öðru landi á Erasmus-styrk og taka nánast enga fjárhagslega áhættu.“

Sleppti tökunum og naut sín

Móttökurnar voru góðar og Ísak fann ekki fyrir því að öðruvísi væri komið fram við erlenda nema en starfsfólkið á staðnum. Eitt af því sem hafði hvað mest áhrif á Ísak var vinnumenningin. „Íslenska vinnumenningin einkennist oft af miklum hraða og því að reyna að gera sem mest á sem skemmstum tíma. Það var mjög frískandi að upplifa vinnustað þar sem fólk vann bara í rólegheitunum og gat gefið sér tíma til að vanda sig eins og það vildi.“

„Það sem hafði mest áhrif á mig var hversu afslappaðir allir virtust vera. Oft finnst mér eins og það séu milljón hlutir sem ég þurfi að gera strax, helst á sama tíma, en á meðan ég var úti gat ég sleppt takinu og notið mín betur en áður.“

Þegar Ísak er beðinn um að lýsa Erasmus+ reynslunni í aðeins þremur orðum stendur ekki á svarinu: „Eftirminnilegt. Yndislegt. Hyggeligt.“

Ísak bendir þeim sem eru að íhuga að sækja sér þjálfun að byrja undirbúninginn tímanlega og þá ekki síst húsnæðisleitina.

„Ég gafst aðeins upp þegar ég var að leita að húsnæði og endaði í íbúð sem var ekki sérstaklega þægileg. Ég sé svolítið eftir því að hafa ekki lagt meiri metnað í leitina.“

Grípið tækifærin

Hann hvetur alla þá sem eru að hugleiða að fara út í starfsþjálfun að láta slag standa: „Látið verða af því! Hvort sem þið farið í einn mánuð eða hálft ár er þetta ómetanleg reynsla. Svona tækifæri gefast ekki á hverjum degi, svo ef þið hafið möguleikann, nýtið hann!“

Viltu kynna þér möguleikana? Sjáðu meira um Erasmus+ samstarf Iðunnar fyrir ungt fólk í leit að starfsnámi og faglegri þjálfun.

Fleiri fréttir